ÞRENGSLIN

..jáá hemmi minn!

mánudagur, desember 29

hahaah! ég held að ég ætti að fjárfesta í svona hjálm eftir alla geimveru draumana mína undanfarið.. hjálmp!

Getiggi sofnað... :(
..en það er aldeilis hvað þessi jól hafa verið gleðileg.
Mín bara komin með nýjasta Sony Ericsson símann..nýja digital vél..semelíu armband og bara bling bling alla leið..!
Ég og Helgi höfðum það bara kósý heima hjá okkur um jólin, elduðum hamborgarhrygg og átum yfir okkur..svo kom Magnea með spil og allir spiluðu yfir sig.
Hvað á svo að gera um áramótin krakkar..því miður verður ekki framhald af síðasta áramótapartýi hérna á Háaleitisbrautinni..en nú verður bara farið yfir til nágrannans ;) ég ætla að reyna að muna eftir því sem gerist í þetta sinn :P

föstudagur, desember 19

Jæja góðir hálsar.

Nú er ég búin að kaupa allar jólagjafirnar og búin með allan peninginn minn!! veeeeii!! Það er svo gaman um jólin!!

miðvikudagur, desember 10

Jæja, langt síðan ég síðast bloggaði..
En ég er nú ansi hrædd um að ég verði að halda þessu áfram reglulega núna, því ég er að fara úúúút! (eftir nokkrar vikur)
Já, Danmörk bíður mín enn á ný.. en í þetta sinn tekur Danmörkin á móti mér einni, ég ætla að vera þar í 5 mánuði og læra það sem mig hefur alltaf langað til þess að læra..óþarfi fyrir mig að segja ykkur hvað það er !!?!? ehh?!
Já, mín ætlar sko að meika'ða..
Ég hvet ykkur öll til þess að fylgjast með mér á blogginu og svo verð ég auðvitað líka á msn reglulega.
Allavega, það er ekki kominn mikill jólafílingur í mig, þó ég gerði fyrstu tilraun í gær við að baka jólasmákökur, þá bara..er ég ekki alveg...með..jóla...þþþ...nú man ég ekkert hvað ég ætlaði að segja..