ÞRENGSLIN

..jáá hemmi minn!

laugardagur, nóvember 17

..ég er svo aldeilis löt að skrifa hér..sem og aldeilis hissa á því.
hvað er annars af mér að frétta..

það er nú bara þannig að ég er að flytja 1.des í norðvestur hluta kaupmannahafnar minnar..
svosem engin vesturbrú..og ég mun sakna hennar..ansi mikið..
en svona er þetta, erfitt að finna húsnæði og maður neyðist til að taka það sem manni býðst á síðustu stundu.
planið var fyrst að flytja miðsvæðis með Katrine vinkonu minni, en nú fór mér að liggja á að fá þak yfir höfuðið og hún var ekki hrifin af því að búa í norðvestri, svo liggur henni ekki eins mikið á að flytja, svo að við ákváðum í sátt og samlyndi að ég tæki bara þessa íbúð og yrði þar bara, ég og sigmar sörensen, ohh hann er svo mikið krútt..(vil einnig benda á að ég mun áfram þiggja gjafir.)
..en þessi íbúð er annars hin fínasta og alls ekki hin dýrasta, 50 fm, í rólegu hverfi, engin kirkjuklukka að valda heilahristingi á hverjum morgni og engir kreisí krakkar að hlaupa niður holar tröppur á ganginum. Jeijjj ég mun sofa vel! þetta eru ca. 25 min á hjóli nirrí miðbæ..svo að það er bara ekki neitt rosa slæmt, heldur mér í formi og sonna...

Ég skellti mér á tónleika með dönsku dansmúsíkgrúppunni Infernal á fimmtudagskvöldið með Ingrid og kærastanum hennar ítalska..og var ég hin hressasta, í góðum fílíng með white trash liði í úthverfi Rødovre..á þessum tónleikum var ansi skrautlegur hópur retharða, kamel táa og UV's með öllu.

Þessi helgi verður því bara letihelgi..ég hef ekkert gert og hef gaman af því..